Bilderberg

Ég lánaði bækur Úlfars Þormóðssonar, Bræðrabönd 1. og 2. bindi á bókasafninu eftir að hafa verið sendur til Íslands með skömm, vegna falskra skjala sem send voru frá Íslandi, skjala sem á voru fleiri réttarmorð. Í þessum bókum sá ég að Geir Hallgrímsson var sagður vera í Bilderberg, samtök sem þá enginn kannaðist við að væru til, en hans var hvergi getið sem frímúrara sem að mínu mati er mjög skrítið þar sem ég er persónulegt vitni að hafa séð hann leggja sínum græna Bens að kvöldlagi fyrir framan frímúrarahúsið að Skúlagötu 55 og lykilopna sig inn. Hver eru tengslin á milli Bilderberg og frímúrara? Fyrir utan Geir Hallgrímsson sem var einn af æðstu mönnum nánar stjórnarformaður í þessum samtökum, eru nefndir Davíð Oddson forsætisráðherra (núverandi utanríkisráðherra), Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Jón Sigurðsson, þá viðskipta og iðnaðarráðherra en situr nú í stjórn Íslandsbankans að ég held, hafi sótt stjórnarfundi hjá þessum leynisamtökum. Þetta vil ég meina að sé krabbameinið sem líðræðið í landinu og heiminum öllum er sannanlega með og meginástæðan fyrir að sjálfstæðismenn vilja ekki gefa upp neitt um sín fjármál. Ég tel einnig mjög líklegt að þessi samtök sjái um aðgengi á fíkniefnum í heiminum og noti frímúrarið til að framkvæma það en þá er að finna í öllum stéttum og öllum landshlutum í viðkomandi landi. Þeir eru semsagt höfundar þeirrar ósjálfbæru þróunar sem hinn vestræni heimur býr við í dag og ráða yfir báðum hagkerfunum, því svarta og hvíta (Taflborðið). Yfirráð þeirra yfir neðanjarðarhagkerfinu gerir þeim létt að ráða hvern sem er til að gera skítverkin fyrir sig. Ég heyrði í Noregi að verð fyrir morð væri frá Nok. 30.000,- eða um þrjú hundruð þúsund íslenskar krónur. Það er einnig mín kenning að þeir nota ýmsar klíkur til að dreifa fyrir sig vímuefnum og er þar til að nefna mótorhjólagengi og hér á Íslandi, uppþurrkaða alka sem eru komnir með trúnaðarmann.

Það eru ýmisar spurningar sem vakna þegar maður skoðar hverjir eru eirnamerktir Bilderberg í Noregi og þekkir eitthvað til stjórnmála þar. Til dæmis hefur eiginmaður Gry H. Brundtland, Arne Ola Brundtland prófessor, mætt á fund með Bilderberg árið 1991.
Gry var forsætisráðherra þegar ég flyt til Noreg árið 1995 og hafði þá verið í forustu fyrir Launþegaflokkinn ( Arbeiderpartiet ) nokkuð lengi. Hún fær tilboð um að stýra hjá WHO (World Health Org.) þar sem hún barðist aðallega fyrir reykingarmálum. Sonur þeirra hjóna hengdi sig, nokkuð sem samkvæmt minni reynslu er ekkert óvenjulegt þegar aðilar tengjast Bilderberg á einhvern hátt. Ekki veit ég hvenær sonur þeirra gerði þetta en mér þætti ekki ólíklegt að það væri á árunum 1991 – 1995 og er það bara ágiskun.
Þegar Gry tekur við stöðunni hjá WHO skipar hún Thorbjørn Jagland sem sinn eftirmann í Launþegaflokknum með fullri traustyfirlýsingu. Persónulega leist mér nokkuð vel á hann og fannst hann traustverðugur. Hann gerði sér samt ekki grein fyrir áformum Bilderbergara að ná tökum á flokknum, en rétt fyrir kosningar 2001 kemur Jens Stoltenberg inn og nær af honum forustusætinu. Þetta gerðist á svo óskyljanlegan hátt fyrir Þorbjörn Jagland að hann skrifaði bók á einni viku um þetta atvik og væri fróðlegt að lesa hana. Ég er nokkuð viss um að hann gerir sér ekki grein fyrir að frímúrarið, leynistjórn Bilderbergara hafi átt þar sinn hluta að máli með eiturnöðrusögum og öðrum álíka viðbjóði. Ef við lítum á stjórnmál sem taflborð, þá eftir mínum skilningi, sitja efstu menn í frímúrarareglunni og skipuleggja næsta leik til að ná settum markmiðum Bilderbergara.
Jens Stoltenberg er jú eirnamerktur Bilderberg eins og pabbi hans sem skýrir kannske það að hann er ekki búinn að hengja sig. Hann sat nefnilega fund með þeim árið 2002, eða ári eftir að hann varð forustumaður Launþegaflokksins. Flokkurinn tapaði töluverðu fylgi í kosningunum 2001, en eru nú komnir aftur til valda árið 2005.
Núna nýverið gaf Jens Stoltenberg opinbera yfirlýsingu um að senda orustuþotu F-16 til Írak og sá maður glögglega á honum í sjónvarpsviðtali að þessi ákvörðun var ekki hans, heldur tekin af öðrum sem ætla sér að stýra olíumálum norðmanna. Hér er hægt að nálgast Excel gagnagrunn um menn sem hafa sótt fundi á árunum 1991 - 2004, ásamt stöðu þeirra í viðkomandi landi, raðað á lönd.

Anna Lind, utanríkisráðherra Svíþjóðar var skráð á næsta fund hjá Bilderberg en var myrt áður en að því varð.
Meintur morðingi Olav Palme fannst dauður á heimili sínu eftir að hafa mælt sér mót með einum nánum ættingja Olav Palme þar sem hann ætlaði að segja sannleikann.

Hér eru Bilderbergarar í Evrópu, norðurlöndum og heiminum ásamt töflu yfir fundarsókn þeirra á árunum 1982 til 2000:

Ísland | Noregur | Danmörk | Svíþjóð | Finland | Þýskaland | Sviss | Alþjóðlegt | Heimurinn | Bilderberg á netinu